|







|
Dvalardeild
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi rekur 10 rýma dvalardeild samhliða rekstri heilsugæslu, sjúkra og bráðarýmis .
Húsbúnaður og vistunarsamningur vistmanna dvalardeildar á 4. hæð HSB.
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til dvalar hjá okkur.
Vistmaður á dvalardeild undirritar við komu, vistunarsamning á milli hans og stofnunar.
Þarf eða útvega sér rúm og einnig aðra innanstokksmuni í herbergið, svo og síma, ísskáp og sjónvarp eða tölvu eftir ástæðum. Fataskápur er í herberginu sem og handlaug, hilla, spegill, glugga og rúllutjöld og ljós eru í lofti og á vegg.
Heilbrigðisstofnunin setur þó eftirfarandi reglur til að koma til móts við það að starfsumhverfi starfsmanna verði sem aðgengilegast til að þjónusta vistmanninn.
- Ekki verði komið með rúm eða bekki sem eru það mjó eða lág að erfitt er að búa um þau eða að þrífa undir þeim.
- Rúm skulu helst vera þannig að hægt sé að hækka og lækka höfðagaflinn og helst með fótstigi sem hækkar og lækkar rúmið eða það sé rafdrifið og ca. 90-105 cm breið. Ef ekki tekst að útvega slík rúm er lágmark að þau séu 90 cm breið, með gormum og góðum dýnum.
- Takmarka skal annan húsbúnað við stærð herbergis þannig að vel rúmt sé til að þrífa og extra herbergið.
- Takmarka skal mannamyndir á veggjum og koma þeim helst þannig fyrir að þær séu sem flestar staðsettar á stóru veggspjaldi.
- Stofnunin sér um þvott á öllum fatnaði. Vistmaður þarf þó að koma með merktan einkafatnað, því annars veldur það ruglingi í þvottahúsi.
- Rúmfatnað, nærföt og handklæði, leggur stofnunin til en frjálst er að nota sitt eigið tau, en tauið þarf þá að vera vel merkt við komu á deildina.
- Matar og kaffitímar eru kl. 9.00., 12.00., 14.30., 17.30., og 20.30. Frjáls heimsóknartími er á deildinni en útidyr við B-inngang eru læstar kl. 20.30. og eftir það er hægt að hringja á dyrabjöllu. Vistmenn skulu láta starfsfólk vita um ferðir sínar utan heimilis.
(Starfsfólk HSB. í des. 2005).
|