Minnka letur Dökkur bakgrunnur Stækka letur
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Flúðabakka 2, 540 Blönduósi • Sími: 455-4100 • Fax: 455-4136 • Netfang: hsb@hsb.is

Viltu hætta að rækja?

Endurnýjun lyfseðla

HSB 50 ára

Saga HSB
Minningarsjóður

HSP hópslysaáætlun 2005

Influensa.is

0802.jpgSjúkradeild

Við innlögn á deild
Sjúklingur skal hafa með sér slopp, inniskó , rakáhöld, tannbursta, tannkrem, greiðu hársápu, hárnæringu og eða aðrar snyrtivörur sem eru nauðsynlegar. Sjúkrahúsið leggur til nærföt og náttföt. Sérreglur gilda fyrir búnað vistmanna á dvalardeild.

Lyf
Á meðan sjúklingur er á sjúkrahúsinu á hann aðeins að nota lyf í samráði við lækna deildarinnar. Lyf og lyfjakort skal því afhenda lækni eða hjúkrunarfræðingi sem hann fær síðan aftur við brottför svo og ráðleggingar um áframhaldandi meðferð.

Annað
Deildin getur ekki ábyrgst fjármuni né verðmæti sem fólk kemur með. Hjúkrunarfræðingar setja verðmæti í geymslu í læstum skáp ef beðið er um það.

Matur
Sjúklingar fá að velja vissar fæðutegundir í morgunverð og kvöldverð í samráði við hjúkrunarfræðing. Hafi fólk sérstakar óskir er reynt að verða við þeim.
Á dvalardeild og deild 2 matast heimilisfólk í borðstofu á 3. hæð.
Matartímar
Morgunmatur 9,00-9,30
Hádegismatur 12,00-12,30
Kaffi 14,30 -15,00
Kvöldmatur 17,30-18,00
Kvöldkaffi 20,00-20,30

Heimsóknir
Heimsóknartími er daglega frá kl.15-16 og 19-20 á sjúkradeild. Einnig eftir samkomulagi við vakthafandi hjúkrunarfræðing. Á dvalardeild er opinn heimsóknartími. Húsið er lokað kl. 20.00 við inngang B alla daga, eftir það skal nota dyrasímann.

Sími
Skiptiborð er opið alla virka daga frá kl. 8-16, sími 455-4100.
Eftir lokun skiptiborðs er hægt að hringja í eftirtalin númer.
Sjúkradeild 1 455-4140
Sjúklingasími 455-4144
Sjúkradeild 2 455-4145
Myntsími og gossjálfsali eru í milligangi þriðju hæðar.
Heimilt er að nota farsíma, en athugið að hringingar valda oft ónæði.

Vistmenn sem dvelja á ákveðnum stöðum á stofnuninni geta fengið einka símalínur m.a. til tölvutenginga.

Reykingar
Eru bannaðar innan dyra og á lóð stofnunarinnar. Sjúklingum sem reykja er vinsamlegast bent á að æskilegt er að draga sem mest úr reykingum og þeim boðin hjálparmeðöl á meðan á dvöl stendur.
Heimilt er vistmönnum og sjúklingum að reykja í stigahúsi við svalir á 4. hæð dvalardeildar.

Bankaþjónusta er frá Búnaðarbanka Íslands fyrstu dagana í hverjum mánuði og er hún auglýst hverju sinni.

Bókasafn
Komið er með bækur til útláns á fimmtudögum fyrir hádegi. Kassi er á sjúkradeild 1 til að skila bókum í.

Kapella
Í kjallara í nýbyggingu er kapella. Þangað geta sjúklinga og aðstandendur leitað.
Vinsamlegast talið við hjúkrunarfræðing ef þið óskið eftir aðstoð við að ná í prest.
Í kapellunni fara fram athafnir s.s. kistulagningar svo og skírnarathafnir ef þess er óskað.

Prestþjónusta
Guðþjónustur eru auglýstar hverju sinni. Bænastund er á miðvikudögum kl. 16.30. Sóknarprestur sér um bænastund og er jafnframt með viðtalstíma fyrir starfsfólk og sjúklinga/vistmenn á miðvikudögum frá kl. 17-18 og hefur hann aðsetur í sérfræðingsherbergi á 2. hæð. Hægt er að panta viðtalstíma á í síma 452 4237.

Félagsstörf
Félagsstörf fara fram í baðstofu og föndurstofu dvalardeildar 4. hæð. Föndur er fyrir vistmenn og sjúklinga þriðjudaga og miðvikudaga kl. 13-16. Félagsstarf er á fimmtudögum frá kl 13 -17. Upplestur er á þriðjudögum og föstudögum kl. 11. Samverustund er haldinn x1 í mánuði.

Leikfimi
Er á mánudögum og fimmtudögum kl. 11 og fer fram í borðstofu sjúkradeildar 2 á 3. hæð. Þvottahús er starfrækt innan stofnunarinnar. Þar er allt lín þvegið svo og einkaþvottur vistmanna.

Útskrift
Við útskrift er farið yfir lyf og lyfjakort sjúklinga og athugað er hvort viðkomandi þurfi heimahjúkrun eða heimaþjónustu.

Vinsamlegast ræðið ekki um sjúkdóma og meðferð annarra og munið að starfsfólk hefur skrifað undir þagnarskyldu.

Heilbrigðisstofnunin Blönduósi ? Flúðabakka 2, 540 Blönduósi ? Sími: 455-4100 ? Fax: 455-4136 ? Netfang: hsb@hsb.is