Heilbrigðisstofnunin Blönduósi |
|
|
Fréttir | 23. október 2009 Tímapantanir vegna bólusetningar hafnarHeilsugæslustöðvar landsins taka frá og með deginum í dag, 22. október, við tímapöntunum frá sjúklingum með tilgreinda „undirliggjandi sjúkdóma“ og frá þunguðum konum vegna bólusetningar við inflúensunni A(H1N1). Byrjað verður að bólusetja þá sem þetta á við mánudaginn 2. nóvember 2009 og gert er ráð fyrir að það taki um fjórar vikur að bólusetja alla í þessum hópum – á sjötta tug þúsunda landsmanna. Á nokkrum heilsugæslustöðvum verður samt unnt að hefja þessa bólusetningu fyrir lok október, þ.e.a.s. á svæðum þar sem lokið er að bólusetja starfsmenn í heilbrigðisþjónustu og fólk í svokölluðum öryggishópum og lykilstörfum (lögregla, slökkvilið, aðgerðastjórnir almannavarna o.fl.). Viðkomandi heilsugæslustöðvar kynna/auglýsa nánar hvernig staðið er að málum.
Gert er ráð fyrir því að læknar sjúklinga með sjúkdóma, samkvæmt meðfylgjandi upptalningu, hvetji þá til að láta bólusetja sig og afhendi þeim sérstakt staðfestingarblað sem framvísað er við bólusetninguna. Þá geta sjúklingar sem greindir hafa verið með sjúkdóma á listanum einnig pantað tíma í bólusetningu þó þeir hafi ekki fengið staðfestingarblöð. Með „undirliggjandi sjúkdómum“ er átt við eftirfarandi:
|
|
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi ? Flúðabakka 2, 540 Blönduósi ? Sími: 455-4100 ? Fax: 455-4136 ? Netfang: hsb@hsb.is |