Minnka letur Dökkur bakgrunnur Stækka letur
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Flúðabakka 2, 540 Blönduósi • Sími: 455-4100 • Fax: 455-4136 • Netfang: hsb@hsb.is

Viltu hætta að rækja?

Endurnýjun lyfseðla

HSB 50 ára

Saga HSB
Minningarsjóður

HSP hópslysaáætlun 2005

Influensa.is


Frá Sóttvarnarlækni

20.10.2009

Símaþjónusta vegna inflúensu

Ef upp koma veikindi sem benda til inflúensu má hringja á dagvinnutíma í heilsugæslustöðina á heimasvæði viðkomandi sjúklings (455 4100). Eftir dagvinnutíma, frá kl.16:00 til 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar, er hægt að hringja ýmist í vaktþjónustu (896 6112) viðkomandi landshluta eða Læknavaktina í síma 1770. Læknavaktin er með vaktþjónustu á höfuðborgarsvæðinu en sinnir einnig fyrirspurnum sem berast frá landsbyggðinni.

Ef upp koma bráð, alvarleg veikindi skal hringja í 112.

Hjálparsími Rauða krossins, 1717, veitir almennar upplýsingar um inflúensuna, en sóttvarnalæknir hefur annast fræðslu fyrir starfsmenn og sjálfboðaliða Hjálparsímans. Markmið með símsvörun Hjálparsímans er að draga úr almennum ótta og minnka álag á heilsugæsluna og Læknavaktina og hann er opinn allan sólarhringinn. Hjálparsíminn svarar ekki fyrirspurnum er varða veikindi þeirra sem hringja eða aðstandenda þeirra, öllum slíkum spurningum verður beint á heilsugæslu viðkomandi svæðis eða Læknavaktina.


Sóttvarnalæknir 

(Samantekt:  Valbjörn Steingrímsson)

Heilbrigðisstofnunin Blönduósi ? Flúðabakka 2, 540 Blönduósi ? Sími: 455-4100 ? Fax: 455-4136 ? Netfang: hsb@hsb.is