|
11:57 |
22. jún. 2010 |
Laugardaginn 12. júní sl. brautskráðust bæði framkvæmdastjóri lækninga og hjúkrunar á heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi með meistaragráðu frá Heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri. |
|
10:16 |
15. jún. 2010 |
Fjölskyldudagur hsb var haldinn í gær 14 júní en í júní ár hvert koma starfsmenn hsb ásamt börnum og mökum saman og gróðursetja sumarblóm og snyrta til umhverfi stofnunarinnar.
|
|
10:30 |
26. apr. 2010 |
Upplýsingabæklingur Gefinn hefur verið út á rafrænu formi þýddur bæklingur með leiðbeiningum um viðbúnað fyrir, eftir og meðan á öskufalli stendur. Þessi bæklingur er þýddur og staðfærður af Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, Landlækni / Sóttvarnalækni, Landspitala og Rauða Krossi Íslands. Þetta er fyrsta útgáfa og er þess að vænta að bæklingurinn verði í stöðugri endurskoðun.
Sjá nánar hér.
(Samantekt: Valbjörn Steingrímsson)
|
|
08:33 |
16. apr. 2010 |
Frá sóttvarnarlækniVegna eldgossins í Eyjafjalljökli og hugsanlegar áhrifa á heilsu manna þá vill sóttvarnalæknir vekja athygli á eftirfarandi:
|
|
10:06 |
05. feb. 2010 |
Í gær lauk fyrsta áfanga af þremur í sérstöku fagnámskeiði fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Námskeiðið er 198 kennslustundir af 230 kennslustunda námi sem þarf til að geta stundað nám á brú fyrir félagsliða. 15 starfsmenn HSB sóttu námskeiðið. |
|
10:01 |
05. feb. 2010 |
Í gær 4. febrúar kom leikskólinn í heimsókn. |
|
13:47 |
09. nóv. 2009 |
Frá sóttvarnarlækniSóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóraembættið hvetja til þess að menn í áhættuhópum panti sér strax tíma í bólusetningu á heilsugæslustöð sinni. Í tilkynningu sem sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóri sendu frá sér í dag segir að nú geti allir landsmenn pantað tíma á heilsugæslustöðvum í bólusetningu gegn inflúensu A(H1N1) frá og með mánudegi 16. nóvember. Viku síðar, eða mánudaginn 23. nóvember, verður byrjað að bólusetja þá sem fyrstir skráðu sig.
|
|
08:05 |
23. okt. 2009 |
22/10/2009
Heilsugæslustöðvar landsins taka frá og með deginum í dag, 22. október, við tímapöntunum frá sjúklingum með tilgreinda undirliggjandi sjúkdóma og frá þunguðum konum vegna bólusetningar við inflúensunni A(H1N1).
Byrjað verður að bólusetja þá sem þetta á við mánudaginn 2. nóvember 2009 og gert er ráð fyrir að það taki um fjórar vikur að bólusetja alla í þessum hópum – á sjötta tug þúsunda landsmanna.
|
|
13:23 |
20. okt. 2009 |
Símaþjónusta vegna inflúensu.
Ef upp koma veikindi sem benda til inflúensu má hringja á dagvinnutíma í heilsugæslustöðina á heimasvæði viðkomandi sjúklings (455 4100). Eftir dagvinnutíma, frá kl.16:00 til 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar, er hægt að hringja ýmist í vaktþjónustu (896 6112) viðkomandi landshluta eða Læknavaktina í síma 1770. Læknavaktin er með vaktþjónustu á höfuðborgarsvæðinu en sinnir einnig fyrirspurnum sem berast frá landsbyggðinni.
Ef upp koma bráð, alvarleg veikindi skal hringja í 112 |
|
09:27 |
14. okt. 2009 |
Fréttir frá LandlækniVísbendingar um að inflúensufaraldur A (H1N1)v 2009 sé að magnast
Undanfarnar tvær vikur hefur inflúensulíkum sjúkdómstilfellum fjölgað talsvert hérlendis, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Hátt hlutfall sýna frá þessum sjúklingum greinist með inflúensu A(H1N1)v á veirufræðideild Landspítala sem bendir til þess að flest tilfellin séu af völdum inflúensunnar.
|
|
08:23 |
10. ág. 2009 |
Í júlí s.l hófst samstaf HSB og FSA á Akureyri um símaþjónustu. Snýst þetta samstarf um að hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku FSA svara vaktsíma lækna á Blönduósi frá kl. 23.00 til 08.00 alla daga og ef talin er þörf á viðtali eða skoðun læknis er símtalið sent áfram á viðkomandi vaktlækni á staðnum. 112 er eftir sem áður neyðarsími í slysum og bráðum veikindum. Hefur reynslan af þessu fyrirkomulagi verið góð.
|
|
09:15 |
11. jún. 2009 |
HÆ HÆ ALLIR SAMAN NÚ ER GAMANHæ Hæ allir saman nú er gaman. Þannig byrjaði auglýsing starfsmannafélags HSB þegar boðað var til árlegs fjölskyldudags starfsmanna HSB sem haldinn var í gær í blíðskaparveðri. |
|
14:52 |
12. maí 2009 |
Heilbrigðisráðherra boðaði forstöðumenn heilbrigðisstofnana til fundar í dag 11.5 og greindi þeim frá áformum ríkisstjórnarinnar.
- Nú er ég ekki lengur bráðabirgðamaður, heldur ráðherra með fullt umboð, og því er það mér mikil ánægja að geta efnt til samræðna og samráðs við ykkur á fyrsta degi nýrrar ríkisstjórnar. Þetta sagði Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, þegar hann ávarpaði fund forstöðumanna allra heilbrigðisstofnana í dag. Ráðherra boðaði til fundarins til að greina frá og útskýra samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar milliliðalaust og svara spurningum um það sem óljóst er í sáttmálanum.
|
|
08:12 |
29. apr. 2009 |
Fréttir frá AlmannavörnumÞað hefur líklega ekki farið fram hjá mörgum að svokölluð svínainnflúensa er að breiðast út.
Mörg tilfelli eru sögð hafa komið upp í Mexíkó og þó nokkur í öðrum löndum. Þetta eru þó ekki mörg tilfelli sem staðfest hafa verið.
|
|
11:05 |
23. feb. 2009 |
Anna Karlsdóttir vistmaður á HSB er 101 árs í dag 23. febrúar. Anna fæddist að Þórormstungu í Vatnsdal og ólst upp hjá foreldrum sínum að Gunnfríðarstöðum í Svínavatnshreppi. |
|
13:42 |
19. feb. 2009 |
Þriðjudaginn 17. febrúar sl. kom Heilbrigðisráðherra Ögmundur Jónason ásamt Jóni Bjarnasyni alþingismanni, Þuríði Backmann alþingismanni en hún er jafnframt formaður heilbrigðisnefndar alþingis og Berglindi Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri í Heilbrigðisráðuneytinu í heimsókn til stofnunarinnar. |
|
13:29 |
08. jan. 2009 |
Miklar sameiningar eru framundan í heilbrigðisgeiranum. Allar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar á Norðurlandi verða sameinaðar í eina undir forystu Sjúkrahússins á Akureyri, sem verður Heilbrigðisstofnun Norðurlands og mun m.a. taka við hlutverki ráðuneytisins varðandi samning um heilsugæsluna á Akureyri
Sjá nánar hér fréttatilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu |
|
08:30 |
31. okt. 2008 |
Á dögunum gaf Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar Blöndusi stofnuninni Ambulantory blood pressure monitor ? blóðþrýstingsmælitæki til nota á stofnuninni.
|
|
11:00 |
29. okt. 2008 |
Rannsóknarstofa flutt á jarðhæðRannsóknarstofa Heilbrigðisstofnunarinnar hefur nú verið flutt af annarri hæð stofnunarinnar á þá fyrstu og þar með móttaka hennar.
|
|
11:55 |
15. okt. 2008 |
Bólusetning gegn inflúensu.
Heilbrigðisstofnunin vill vekja athygli almennings á því að skipulögð bólusetning gegn inflúensu hefst á heilsugæslunni Blönduósi og Skagaströnd mánudaginn 13. október 2008.
|