Minnka letur Dökkur bakgrunnur Stækka letur
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Flúðabakka 2, 540 Blönduósi • Sími: 455-4100 • Fax: 455-4136 • Netfang: hsb@hsb.is

Viltu hætta að rækja?

Endurnýjun lyfseðla

HSB 50 ára

Saga HSB
Minningarsjóður

HSP hópslysaáætlun 2005

Influensa.is

Fjölmenningarsetur

Frá Hollvinasamtökum HSB

Ágætu Húnvetningar, nú er svo komið að þörf er á að bæta tækjabúnað HSB. Augnlæknir fæst ekki lengur til að koma og veita Húnvetningum þjónustu sökum úrelts tækjabúnaðar. Felld hafa verið úr gildi lög um augnlækningaferðir eins og það var kallað hér áður og um leið þær skyldur sem ríkið hafði vegna slíkra ferða. Nýr tækjabúnaður sem uppfyllir kröfur um nútíma lækningar kostar um 600.000 kr. og þar sem það er ekki talið í verkahring stofnunarinnar að sinna slíkum málum er ekki heldur fjárveiting frá ríkisvaldinu til þess heldur að endurnýja tækin. Þá teljum við einnig þörf á að kaupa svokallaðan blöðruskanna en hann kostar um tvær milljónir króna. Hollvinasamtök HSB hafa ákveðið að beita sér fyrir söfnun í þeim tilgangi að kaupa ofangreind tæki og vilja undirritaðir hvetja fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga til að leggja þessu málefni lið. Munið að margt smátt gerir eitt stórt. Þeir sem vilja leggja þessu málefni lið geta lagt inn á reikning samtakanna nr: 0307 - 13 – 700270 – kt. 490505-0400 Með fyrirfram þökk fyrir veittan stuðning Ásgerður Pálsdóttir formaður Hollvinasamtaka HSB Valbjörn Steingrímsson forstjóri HSB
lesa »

Einar Óli maður ársins

Eins og undanfarin ár völdu lesendur Feykis og Feykis.is mann ársins úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af íbúum svæðisins. Þau átta sem í kjöri voru fengu öll atkvæði enda vel að kjörinu komin en baráttan stóð á milli þeirra Einars Óla Fossdal á Blönduósi og Stefáns Pedersen á Sauðárkróki en þeir tveir fengu flest atkvæðin og var mjótt á munum. Á hæla þeirra kom Hvammstangabúinn Ómar V. Karlsson.
lesa »
Dóra, Beta, Siffa og Þrúður
Dóra, Beta, Siffa og Þrúður

Jólahlaðborð

Hið árlega Jólahlaðborð hjá HSB var í dag 8 desember. Að venju var það glæsilegt og gott og á myndunum hér til hliðar má sjá starfsfólk eldhúss HSS sem útbjó hlaðborðið og aðra starfsmenn og gesti þeirra. Við þetta tilefni fá starfsmenn einnig jólagjafir frá starfsmannafélaginu. Hafið hjartans þakkir Beta, Dóra, Siffa og Þrúður sem áttu heiðurinn af því að útbúa jólahlaðborðið þetta árið. Sett inn af: Valbjörn Steingrímsson
lesa »
Dómhildur Jónsdóttir,  Guðný Pálsdóttir og Guðlaug Sigurbergsdóttir
Dómhildur Jónsdóttir, Guðný Pálsdóttir og Guðlaug Sigurbergsdóttir

Jólabakstur

Heimilisfólk tekur þátt í jólabakstrinum

Í dag byrjaði starfsfólk eldhúss HSB að baka til jólanna. Þeim til aðstoðar voru nokkrar vanar konur sem nú eiga heimili á stofnuninni. Á myndunum hér til hliðar má sjá að handagangur er í öskjunni og mikið að gera.
lesa »

Niðurskurður í velferðarmálum – hvað er verið að gera?

Niðurskurður í velferðarmálum – hvað er verið að gera var yfirskrift erindis Guðbjarts Hannessonar sem hann flutti starfsfólki HSB 3. nóvember sl.
lesa »

Kort af svæði HSB

Heilbrigðisstofnunin Blönduósi

Skiptiborð opið virka daga 8-16
Tímapantanir alla virka daga 8-16 í síma 455-4100 Simaviðtalstímar lækna eru virka daga frá kl. 11-12. Tekið er á móti símaviðtalspöntunum alla virka daga frá 8 - 16.  

Heimsóknartímar á deildar alla daga
kl. 15-16 og 19-20 eða eftir samkomulagi.

Bráðaerindi til vaktlæknis eftir lokun skiptiborðs 896 6112 eða 112

Heilsugæslan á Skagaströnd

Ægisgrund 16 sími 455-4100

Viðtalstímar læknis mánud. 9-12, fimmtudaga 13-15.30

Símaviðtalstímar lækna alla virka daga frá kl.  11 - 12 í síma 455 4100 

Bráðaerindi til vaktlæknis eftir lokun skiftiborðs 896 6112  eða í 112

Neyðarsími 112

Tilkynningar
Sérfræðingar - Tímapantanir í síma 455 4100

Guðni Arinbjarnar bæklunarlæknir verður hjá  okkur 17 jan. n.k.    

LAUS STÖRF

Áhugasamir hafi samband í síma 455 4100

Sjá nánar laus störf

Einnig er hægt að nálgast hér

Starfsumsókn

-18.04.2006

Heilbrigðisstofnunin Blönduósi Flúðabakka 2, 540 Blönduósi Sími: 455-4100 Fax: 455-4136 Netfang: hsb@hsb.is Ritstjórn